top of page
Um vöruna

Mannauður ST2 – Gervigreindardrifin mannauðslausn


Mannauður ST2 tengir sjálfsafgreiðslu, samþykktir, skjöl, gervigreind með Copilot og mælaborð í einni lausn—með rekjanleika og rauntíma innsýn sem bætir upplifun starfsfólks og styður faglega ákvarðanatöku.



Hvað er lausnin?

Mannauður ST2 er heildstætt HR‑kerfi sem tengir saman onboarding, sjálfsafgreiðslu, samþykktir, skjalavistun, tilkynningar og mælaborð á einum stað. Starfsfólk skráir beiðnir og fylgist með stöðu þeirra; stjórnendur fá ítarlega innsýn í lykilmælikvarða og geta samþykkt rafrænt með rekjanleika og reglustýringu.


Helstu ferlar og virkni
  • Beiðnir starfsfólks: heilsustyrkir, skólagjöld, orlof, vottorð, akstursgreiðslur, tæknibeiðnir o.fl. — með sjálfvirkum reglum, tilkynningum og samþykktum.

  • Samþykktarflæði: rafræn samþykkt í rauntíma (t.d. orlofsumsóknir) með rekjanleika.

  • Skjalastjórn: miðlæg varðveisla skjala, útgáfu- og aðgangsstýring.

  • Mælaborð og greiningar: Power BI mælaborð fyrir viðveru, fjarvistir, þróun lykiltalna og samanburð milli eininga.

  • Spjallaðstoð: innanhúss snjallspjallmenni sem sinnir erindum starfsfólks og leiðbeinir um stöðu mála.


Af hverju HR + Copilot?
Copilot og AI færa mannauðsstjórnun hraða og innsýn:
  • Samtalsaðstoð (Copilot Agents): Leiðsögn í rauntíma, leitarvinnsla í HR‑gögnum, samantektir með svörum til starfsfólks og stjórnenda.
  • Gervigreind í ráðningum:
    • AI greinir ferilskrár, flokkar umsóknir eftir hæfni og styður sanngjarnt, gagnsætt val.
    • Hlutverkastýrð Onboarding ferli sem sinna skjalavinnslu, deila úr verkefnum og leiðir hagaðila í gegnum ferlið.

  • Sjálfvirkni í ferlum: Reglustýrðar tilkynningar, áminningar og samþykktir sem stytta afgreiðslutíma og halda utan um rekjanleika.


Lykileiginleikar
  • Microsoft Power Platform grunnur: Copilot Studio Agents, Power Apps, Power Automate, Power BI og samtalstengdar þjónustur.

  • Farsímastuðningur: Vef- og appviðmót (iOS/Android) fyrir starfsmenn og stjórnendur.

  • Samþættingar: Sjálfvirk tenging við bókhald, launakerfi og önnur innri kerfi; yfir 1.000+ stöðluð tengingar.

  • Rauntíma mælaborð: lykiltölur, þróun og samanburðargreiningar til að styðja gagnadrifna ákvörðunartöku.


Samræmi, öryggi og hýsing

Lausnin er sett upp innan skýjageira (tenant) viðskiptavinar þannig að öryggisstefnur og aðgangsstýringar fyrirtækisins gilda sjálfkrafa. Gögn eru hýst í Microsoft Azure (West Europe) með verklagi í samræmi við ISO 2701 og GDPR.


Tengsl við aðrar lausnir ST2
  • Mannauðsgreiningar: Power BI mælaborð fyrir viðveru/fjarvistir, þróun lykiltalna og samanburð milli ára/eininga.

  • Beiðnakerfi: sérsniðið beiðnaflæði sem tengist mannauðsferlum og samþykktum.


Innleiðing & næstu skref

Við bjóðum sveigjanlega nálgun við innleiðingar:

  1. Vinnustofa (Discovery): Kortlagning HR‑ferla, samþykktareglna og KPI.

  2. Snið & reglur: Hönnun sjálfvirkni (Power Automate), aðgangsstýringar og skjalaflæðis.

  3. Copilot virkjun: Uppsetning AI‑aðstoðar í ráðningum, samskiptum og innri þjónustu.

  4. Uppsetning & fræða: Stillingar, öryggi, þjálfun stjórnenda/stafsfólks og prófanir.



Lausnin er byggð á traustum grunni Microsoft Power Platform sem tryggir öryggi, stöðugleika og fulla samræmingu við tæknilega innviði fyrirtækja.

bottom of page