top of page

Gæðakerfi / Gæðaskráningar

Um vöruna
Stafrænt gæðakerfi með Copilot & AI

Stafrænt gæðakerfi byggt á Power Platform með Copilot & AI. Staðlaðar skráningar, sjálfvirkni, skjalastýring og rauntíma KPI.


Gæðakerfi ST2 einfaldar gæðastjórnun og frávikaskráningar, veitir rekjanleika frá skráningu til úrbóta og skilar rauntíma innsýn í lykilmælikvarða. Lausnin byggir á Microsoft Power Platform og Copilot og nýtir gervigreind til að hraða skráningum, bæta gæði gagna og styðja ákvarðanatöku.


Lausnin

Gæðakerfi ST2 er heildstæð lausn hönnuð til að skrá, fylgja eftir og greina gæðamál – allt frá frávikum og CAPA til úttektarlista, skjalastjórnunar, samþykkta og mælaborða. Lausnin styður stöðugar umbætur með rekjanlegum ferlum og sjálfvirkni.


Helstu einingar
  • Frávik & atvik: Skilgreining, flokkun, forgangsröðun, rótargreining og eftirfylgni. Sjálfvirkar áminningar tryggja að ekkert gleymist.

  • CAPA (Corrective/Preventive): Mótun úrbóta, ábyrgð, frestir og mælanleg lokun.

  • Úttektir & gæðaskoðanir: Staðlaðir listar (checklists), sönnunargögn (myndir/skjöl), einkunnir og samantektir. Hentar vettvangsvinnu í síma/spjaldtölvu.

  • Skjalastýring: Útgáfu- og rekjanleikastýring í SharePoint Online með samþykktarflæði.

  • Mælaborð (Power BI): KPI, þróun frávika, lokunartími, samræmi o.fl. í rauntíma.


Af hverju gæðakerfi + Copilot + Gervigreind?

Með Copilot og innbyggðri gervigreind fær gæðastarfið aukinn hraða og virkari innsýn:

  • Snjöll skráning & flokkun: AI metur innsendingar, finnur mynstur og stingur upp á næstu skrefum.

  • Samtalsaðstoð (Copilot Agents): Notendur fá leiðsögn í rauntíma, leita í gögnum, fá samantektir og drög að úrbótum.

  • Greining skjala: AI les og metur gæðaskjöl (t.d. verklýsingar) og varar við ósamræmi.


Lykileiginleikar

  • Microsoft Power Platform grunnur: Power Apps, Power Automate, Power BI og samtalsviðmót (Power Virtual Agents).

  • Farsímastuðningur: Vef- og appviðmót (iOS/Android) fyrir vettvangsskráningar.

  • Sjálfvirkni: Reglustýrðar tilkynningar, viðvaranir og samþykktarferli.

  • Samþættingar: Yfir 1.000+ tengingar við innkaup/birgðir/bókhald og önnur fyrirtækjakerfi.

  • Rauntíma innsýn: KPI, þróun, samanburðir milli eininga og tíma.


Samræmi, öryggi og hýsing

Lausnin er stillt innan skýjageira (tenant) viðskiptavinar, þannig að öryggisstefnur og aðgangsstýringar fyrirtækisins gilda sjálfkrafa. Gögn eru hýst í Microsoft Azure (West Europe) með verklagi í samræmi við ISO 2701 og GDPR.


Dæmi um notkun
  • Framleiðsla og þjónusta: frávik/úrbætur, línuskoðanir, gæðaskoðanir.

  • Vöruhús og dreifing: móttaka, vörumeðhöndlun, rekjanleiki og viðvaranir.

  • Byggingar og framkvæmdir: vettvangsúttektir, öryggis- og gæðaskoðanir, skjöl og kvittanir.


Tengsl við LIR (List • Item • Response)

Gæðaskráningar nýtast sérstaklega vel með LIR-aðferðafræði ST2 (List–Item–Response), sem einfaldar stöðluð skráningarferli, gagnasöfnun og eftirfylgni.


Innleiðing & næstu skref

Við bjóðum sveigjanlega nálgun við innleiðingar:

  1. Vinnustofa (Discovery): Kortlagning ferla, gæðaviðmiða og KPI.

  2. Snið & reglur: Mótun skráninga, sjálfvirkni og samþykktarflæðis (Power Automate).

  3. Copilot virkjun: Uppsetning AI aðstoðar, spjalla og skjalagreindar.

  4. Uppsetning & fræða: Stillingar, öryggi, aðgangsstýring og þjálfun notenda.


Gæðakerfi ST2 tengir skráningar, skjöl, sjálfvirkni, AI og mælaborð – þannig næst meiri skilvirkni, rekjanleiki og betri ákvarðanir dag frá degi.


bottom of page